Forsíða

Úr Gudfinna

Fara á: flakk, leita

Efnisyfirlit

Guðfinna er vefur afkomenda Ágústínu Jónsdóttur.

Ágústína Jónsdóttir fæddist í Búrfellskoti Grímsnesi 22.08.1886. Hún var dóttir Jóns Bjarnasonar bónda að Búrfellskoti frá Borgarkoti Ölfushreppi og Ingveldar Gísladóttur frá Kröggólfsstöðum Ölfushreppi. Ágústína giftist Júlíusi Þorkelssyni 17.07.1920 en áður átti hún barn með Hafliða Hafliðasyni:

Börn Ágústínu og Júlíusar voru:

Guðfinna dóttir Ágústínu og Júlíusar dó 21. júlí 2005 síðust systkina sinna. Hún var barnlaus og giftist aldrei, hennar ósk var að eigur sínar gengju í sjóð til styrktar íþróttafólki í Ungmennafélaginu Aftureldingu í Mosfellsbæ til minningar um móður sína, en hún var einn af stofnendum ungmennafélagsins. Guðfinna dó áður en hún gat gengið endanlega frá gjöfinni og gengu því afkomendur Ágústínu í það að láta ósk Guðfinnu rætast.

Af þessu tilefni er þessi vefur settur upp 6. maí 2006, en þá heldur Afturelding boð fyrir afkomendur Ágústínu Jónsdóttur í Hlégarði í tilefni af stofnun styrktarsjóðsins. Vefurinn ber nafn Guðfinnu.

Skráið sjálf

Ætlunin er, að fólk skrái sjálft inn upplýsingar um sig og sína og setji inn myndir í vefinn, það er mjög auðvelt. Sett hefur verið inn lítilsháttar efni sem hægt er að byrja á. Munið að vísa í heimildir og/eða að fá leyfi ef höfundarréttarvarið efni er sett óbreytt inn.

Sendið inn efni

Þeir sem ekki treysta sér til þess að setja inn myndir og efni geta sent mér það í tölvupósti : jonb@it-cons.com eða heim til mín Brattholt 2B 270 Mosfellsbæ.

Fréttir og tilkynningar

Fréttir

Annáll

Annáll

Ættliðir
Börn Ágústínu
Barnabörn Ágústínu
Barnabarnabörn Ágústínu
Barnabarnabarnabörn Ágústínu
Barnabarnabarnabarnabörn Ágústínu

Ættartré

Hægt er að ýta á nöfnin og skoða upplýsingar um aðilann.

Hýsing

Vefurinn er hýstur hjá og kostaður af IT ráðgjöf og hugbúnaðarþjónusta ehf, innihald hans er ekki á ábyrgð fyrirtækisins.