Guðfinna Júlíusdóttir

Úr Gudfinna

Fara á: flakk, leita
Guðfinna Júlíusdóttir
Mynd:gudfinna.jpg
Nafn Guðfinna Júlíusdóttir
Nafn föður Júlíus Þorkelsson
Nafn móður Ágústína Jónsdóttir
Fæðingardagur 07.12.1923
Dánardagur 21.07.2005

Verslunarmaður

Guðfinna fæddist í Reykjavík 7. desember 1923. Hún var dóttir Ágústínu Jónsdóttur og Júlíusar Þorkelssonar og ólst upp í stórum systkinahópi því hún átti fimm albræður; Svavar og Gunnar voru eldri en Guðfinna en þeir Guðjón, Jón og Bjarni yngri. Ágústína hafði áður eignast Sigurð Hafliðason – þannig að alls voru systkinin sjö sem ólust upp saman. Júlíus eignaðist síðar fimm önnur börn, en aldrei var neitt samband við þann systkinahóp.

Óhætt er að segja að ekki hafi verið mulið undir Ágústínu og börnin hennar sjö, enda var hún mikið til ein með börnin sem öll komust samt vel til manns. Þau fengu líka í vöggugjöf dugnað, ósérhlífni og samheldni sem áréttuð voru með uppeldinu. Systkinin fóru ung að taka til hendinni og aðstoða við að draga björg í bú. Guðfinna var bræðrum sínum síst neinn eftirbátur í vinnuhörku og krafti. Hún vann stærsta hluta sinnar starfsævi í sundlaugunum – fyrst gömlu laugunum við Sundlaugarveg og síðar í Laugardalslauginni. Jafnhliða því starfi sinnti hún hreingerningum, í heimahúsum jafnt sem atvinnuhúsnæði.

Guðfinna hélt heimili með móður sinni allt þar til er Ágústína lést árið 1976. Bræðurnir fóru að heiman einn af öðrum, kvæntust og komu sér upp fjölskyldum og að endingu stóðu þær mæðgur tvær eftir heima.

Ágústína bjó lengst með börnin sín við talsverð þrengsli í bakhúsi við Laugaveginn. Eftir að þeim mæðgum var gert að yfirgefa þann stað bjuggu þær tímabundið á nokkrum stöðum í bænum, en fljótlega einsetti Guðfinna sér að eignast eigið húsnæði og réðst í að kaupa glæsilega íbúð í einhverri hæstu blokk borgarinnar sem verið var að byggja við Kleppsveg 2-6 í Reykjavík – fyrir valinu varð íbúð á efstu hæð, þeirri áttundu, með glæsilegt útsýni í nánast allar áttir. Á taknrænan hátt voru þær mæðgur komnar eins langt frá lágreistum híbýlunum á Laugaveginum og hægt var.

Þegar Guðfinna fullorðnaðist fluttist hún í Mosfellsbæinn og síðar að Esjugrund á Kjalarnesi þar sem hún hélt síðast heimili – komin í námunda við uppeldisstöðvar áa sinna.

Guðfinna ól ekki sjálf börn inn í þennan heim, en samt átti hún þau ótalmörg - því óhætt er að fullyrða að hún eignaðist stóran hlut í barnaskaranum sem bræður hennar eignuðust – og þeirra afkomendum. Heimili þeirra mæðgna var í mörg ár vettvangur fyrir fjölmennar fjölskyldusamkomur um helgar, með spilamennsku, kaffidrykkju og gosþambi, köku- og sælgætisáti. Jafnan glatt á hjalla og mikið fjör. “Finna frænka” varð eins konar stofnun innan fjölskyldunnar – og hún var jafnan auðfúsugestur á heimilum bræðra sinna og þeirra fjölskyldna, og ómissandi á hátíðisdögum eins og skírnarveislum, fermingum og brúðkaupum. Þegar ákefðin í hinni sístækkandi familíu varð sem mest átti Finna fullt í fangi með að sinna þessu öllu.

Þegar heldur fór að hægjast í ævi Finnu og hún var minna á fartinni var það fastur liður í jólahaldi margra að sækja Finnu heim, skiptast á pökkum og drepa hendi annað slagið í hinar óþrjótandi sælgætisnámur sem dugað hafa til að glenna upp sjáöldrin á smáfólkinu í fjölskyldunni í áratugi.

Hún Finna var mikil rausnarsál; gjöful, hjálpsöm og traust – sannkallað tryggðatröll. Jólagjafirnar hennar síðustu árin voru ábyggilega fleiri en hundrað talsins um hver jól og að jafnaði kom kveðja og gjöf frá henni í hvert sinn sem einhverju barni í fjölskyldunni var haldið undir skírn, það fermt eða gift. Hún hafði að sönnu líka ríka lund, stóð fast á sínu og gat verið óhemju þrjósk. Þegar heilsu hennar fór að hraka vildi hún til dæmis ekki þiggja hvaða hjálp sem var í boði og hafði illan bifur á sjúkrahúsum. Miðað við hvað heilsan hennar síðustu árin var óburðug var kraftaverki líkast að henni skyldi unnt að búa á eigin heimili allt fram á síðasta vor er hún flutti að dvalarheimilinu í Víðinesi, þar sem hún lést fimmtudaginn 21. júlí 2005.

Guðfinna hefði vitaskuld aldrei getað dvalist jafn lengi heimavið og raun ber vitni ef ekki hefði komið til einstök vinátta, ástúð og alúð sem hún naut frá hendi Vigdísar Sigurðardóttur frænku sinnar og hennar fólks.[1]

^  Sigurður Svavarsson tók saman.

Vefurinn Guðfinna

Þessi vefur er tileinkaður Guðfinnu Júlíusdóttur og nefndur eftir henni í virðingarskini.

Ljósmyndir

Snið:Spjald ljósmynd Til eru ótal ljósmyndir af Guðfinnu og ættingjum hennar, og væri gaman að sjá nokkrar hér til viðbótar.

föstudagur 7. desember 1923 f.

fimmtudagur 21. júlí 2005 d.